Saumanámskeið í Föndru í febrúar

Dagar: Fjögur skipti; mánudagar og miðvikudagar – 9., 11., 16. og 18. febrúar

Tími: 18.00 – 21.00

Staður: Verslunin Föndra, Dalvegi 18, Kópavogi.

Hámarksfjöldi: 6 – 7 þátttakendur

Námskeiðsgjald: 38.000kr.

Skráning á saumanámskeiðið er til 5.febrúar - á netfangið aoj@hi.is.
Gefa þarf upp nafn, símanúmer og netfang. Greiða þarf námskeiðsgjaldið áður en námskeiðið hefst.

Þátttakendur fá þjálfun í eftirfarandi:

  • Að sauma á eigin saumavél

  • Að þekkja áhöld við sníða- og saumavinnu

  • Að taka mál og velja stærð

  • Að velja snið og efni

  • Að taka upp snið og sníða

  • Að setja saman flík og sauma

Þátttakendur frá 20% afslátt í versluninni Föndru, m.a. af sniðablöðum, sníðapappír, efni og tvinna.

How to Tie-Dye with Rit

Nýjustu vörur